Ísland, bezt í heimi...
3.7.2008 | 23:58
Ég er að fara á Landsmót um helgina með Jönu og Tinnu. Hér voru bökuð skinkuhorn og kanilsnúðar í dag og flatkökur smurðar með hangikjeti... svoleiðis á að borða á hestamannamótum, það er eiginlega skylda! Ef ég hefði haft tíma til þá hefði ég spreytt mig á kleinubakstri!!!
Ég er líka búin að vera að æfa mig með myndavélina mína og tókst frekar vel til með miðnætursólina í síðustu viku... eiginlega rosalegt hvað við erum heppin hérna á Íslandi. Ég og Lárus bróðir fórum í nokkra hjóla- og labbitúra til að fanga augnablikið... hér eru nokkur sýnishorn
Fleiri myndir eru á Flickr síðunni minni.
Athugasemdir
Glæsilegar myndir, greinilega snillingur á bakvið vélina hér á ferð. En skemmtu þér vel á Hellu og taktu myndir fyrir okkur sem ekki komumst.
Valdi 4.7.2008 kl. 15:55
Þetta eru ekki flottar myndir. Staðreynd lífsins.
Hahahaa það skilur þetta enginn nema ég og þú og Tynna
Takk fyrir æðislega skemmtilegt Landsmót Rósa mín - þetta verður sko endurtekið eftir tvö ár!!
P.s. They are calculating the marks out.....
Jana 6.7.2008 kl. 23:39
Já stelpur mýnar, veryð velkomnar í rymm-trymm básynn eftyr 2 ár, rymm-trymm mammals og fleyra nítt verður kinnt til sögunnar...
Hallóóó... hefuru séð svona flottan fána.... þrjúogfimm... sé ykkur seinnaaa!
Tynna 7.7.2008 kl. 10:35
Geggjaðar mYndir Rósa, ég þarf greinilega að fara að pilla mig út og taka myndir og keppnishæf:)
Jolly 13.7.2008 kl. 18:45
mikið var makalaust gaman hjá okkur í gær, enda ert þú alveg einstök ;-)
louie 20.7.2008 kl. 16:18
Haha... já það er makalaust hvað við getum skemmt okkur einstaklega vel
Rósa Gréta Ívarsdóttir, 21.7.2008 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.