Færsluflokkur: Bloggar

...iii djók

Þarna hljópstu á þig, viðurkenndu það bara. Ég er ekki að flytja til Sydney í Ástralíu út af vinnu, þó mig langi það... 

1. APRÍL!!!!

 


 


Komin heim :)

Jæja... þá er þessari heimsreisu lokið! Rúmlega mánuði í ferðatösku lokið...

Þegar ég bloggaði síðast var ég í Emu Park á leiðinni á krókódílabúgarð daginn eftir. Það var nú meira fjörið. Við fengum okkur krókódíl í hádegismat og fengum svo að skoða dýrin í návígi og knúsa einn lítinn... eða knúsa í hæfilegri fjarlægð frá andlitinu á okkur þar sem hann hefði getað mölbrotið á okkur kjálkann með einu höggi. Steikin var svakalega góð en það var nú ekki hápunktur dagsins... HITINN... og RAKINN - við erum að tala um 35 stiga hita og 80-90% raka, shit... þetta var í fyrsta skipti sem ég hef komið út úr bíl og fengið móðu á gleraugun út af hita úti við - haha! Um kvöldið fengum við að upplifa alvöru tropical rigningu... og við erum að tala um að þetta er eins og maður sér í bíómyndunum... m.a.s. froskarnir leituðu skjóls!

Jæja, þegar heim var komið til Brisbane tók við rosalega skemmtilegt kvöld heima hjá Írisi frænku Hrafnhildar, gómsætt grill ásamt mesta dýralífi sem ég hef kynnst í grillveislu - þar komst ég að því að ég er eiginlega orðin pollróleg yfir því að hafa eitthvað skríðandi á öxlinni á mér... that's a first! Elsa eldaði svo fyrir okkur kengúru á laugardagskvöldinu og okkur fannst hún svo æðisleg að hún var elduð líka á sunnudeginum áður en við fórum haha!

Á laugardeginum... daddaradamm - þá fengum við okkur tattoo, ég með mitt þriðja, Hrafnhildur sitt fjórða og Eyrún sitt fyrsta! Cool Stofan hét því skemmtilega nafni "Dragon's Lair" og er eingöngu gaman að segja það upphátt með dramatískum breskum hreim, prófið það... í alvöru! Við Eyrún fengum okkur á ristina orðin "Stóra systir" á aboriginal tungumáli og Hrafnhildur fékk sér "Dreams come true" á Hindi á annan úlnliðinn. Við áttum svo í mestu erfiðleikum við að ganga ekki á fólk þann daginn þar sem við vorum svo mikið að skoða nýju listaverkin - haha!

Heyrðu, jæja... við Eyrún lögðum svo í hann heim á leið á sunnudagskvöldinu 25.jan, flugum til Sydney og eyddum nóttinni á flugvellinum þar í faðmi kakkalakka og annarra ferðalanga. Við komum til Peking eftir millilendingu í Shanghai um hálfellefu það kvöld og tókum taxa á hótelið okkar. Jah, það var nú voða auðvelt nema hvað að helvítis gæjinn svindlaði á okkur... rukkaði okkur margfalt það sem taxinn átti að kosta... en okkur var nokk sama þar sem maðurinn talaði ensku og kom okkur klakklaust á leiðarenda! Við vorum svo þreyttar og ónýtar að við sofnuðum eiginlega samstundis og sváfum í einhverja 10 tíma - lengsti svefninn okkar í mánuð!

26.jan skutluðum við okkur upp á Kínamúrinn í Badaling, rétt utan við Peking - já, það var sko lífsreynsla! Ég hélt ég myndi aldrei í lífi mínu verða svo víðförul að standa á Kínamúrnum en nú get ég krossað við það í mínum bókum! Við vorum líka svo fyndnar að senda sms-ið "Ég segi allt í fína frá Kína" uppi á múrnum - já... kannski var það fyndnara á staðnum! Svo keyptum við auðvitað tacky minjagrip uppi á múrnum... gullpening sem á stendur "I climbed the great wall" með nöfnunum okkar á... alveg ultra tacky! Það má því eiginlega segja að við höfum komið Ólympíugullinu heim á endanum eða hvað? Toppurinn á þessari ferð á múrinn var táknmálið sem ég talaði við leigubílstjórann okkar sem var auðvitað ótalandi á ensku og það að ég fékk stúdentaafslátt út á íslenska ökuskírteinið mitt - GERI AÐRIR BETUR!

Ég heillaðist lítið af Peking, eiginlega ekkert... mengunin er svo gígantísk að maður sér sólina sem rauða kúlu uppi á himninum... og maður er þurr í kverkunum og nefinu út af þessu ógeði - ég hefði bara ekki getað ímyndað mér þetta - nú skil ég af hverju fólk er með læknagrímur í þessu landi við allar aðstæður!

Ferðalagið hélt svo áfram 28.jan þar sem við urðum svo heppnar að fá 1 business class sæti á leiðinni til London þar sem Eyrún hafði verið uppfærð - við skiptum sætinu því á milli okkar 5 1/2 tími á haus (ójá nú komumst við að því að flugið Lon-PEK er 11 tímar) og já, þessi uppfærsla stytti flugið fyrir okkur alveg um helling, það var yndislegt að geta aðeins teygt úr sér... væri eiginlega til í að geta alltaf flogið á business class!

Við komum svo heim á miðnætti 28.janúar - örþreyttar og úrvinda en brosandi út að eyrum með vel heppnað ferðalag :) Við fengum svo fallegt veður hérna fyrstu dagana og það virðist ætla að haldast... ég gat ekki annað en sett Pottþétt Jól 3 á fóninn í bílnum því þessi snjór kom mér í feiknajólaskap!

Myndir frá þessu ferðalagi telja um 1.500 stk frá mér, annað slíkt frá Eyrúnu og örugglega frá Hrafnhildi líka... þær munu koma inn á netið eftir að við stöllur förum gegnum þær saman!

Nuff said í bili!


Dagur 24 (held eg... ekki alveg viss, timinn er allur i garnaflaekju herna uti!)

Jaeja, VA... hvar a eg eiginlega ad byrja!

Melbourne til Brisbane gekk vel. Vid endudum dvolina thar a thvi ad fara i Melbourne Zoo, Eureka Skydeck (eg og Hrafnhildur, Eyrun for a eitthvad voda fint safn a medan) og vid H. skelltum okkur i "The Edge" sem er glerkassi i holf og golf i 285 metra haed eda svo og fer 3 metra ut ur byggingunni... jah, vid segjum thad bara thannig ad eg gret af hraedslu en eg segi ad eg se algjor hetja, verandi eins lofthraedd og eg er! Vid forum svo i Southern Star sem er huge parisarhjol, staersta herna megin vid midbaug... vid erum voda mikid i svona logudu... profa allt sem er best og mest herna megin vid midbaug! Island er svo audvitad best tharna hinum megin! Heyrdu... og talandi um, vid forum i Neighbours turinn pahahaha... eitt thad fyndnasta sem vid hofum gert herna... o boj... okkur fannst vid eiginlega vera ad svindla a profi thegar konan sem var guide for ad spyrja okkur um stodu mala i thattunum heima, engin okkar horfir nefnilega a Nagranna haha, okkur fannst vid bara ekki geta sleppt thessu!

Vid erum svo bunar ad vera i fimmta gir sidan vid komum til Brisbane og eg eiginlega get ekki lyst thvi hvad thad er gaman herna hja okkur! Fyrsta vikan hja Elsu fraenku Hrafnhildar for i ad fara nidur a Gold Coast, heimsaekja aettingja hennar Hrafnhildar, fara i regnskogarferdir - O'Reilly's og Springbrook, liggja a Gold Coast, synda i heitum sjonum, fara a gervistrond nidri i midbae Brisbane, sem var eiginlega bara toff... og svo forum vid i Australia Zoo (Steve Irwin gardurinn) og saum Bindi Irwin og the Crocmen performa... haha thad var eiginlega kjanalegt! En gardurinn var aaaaedi... og vid fengum ad knusa koala - eitt af thvi kruttlegra sem eg hef fengid i fangid... og hann vildi eiginlega ekki sleppa mer, gaurinn sem sa um hann sagdi "he clearly likes your smell or something" thvi litla dyrid festi sig a mig og vildi ekki sleppa! Litla greyid, vid vorum heppnar ad hitta a tha vakandi thar sem their sofa 18-20 tima a solarhring! Vid fodrudum svo kengurur og fila og kloppudum eiturslongu - bara name it... bara gaman! Vid forum svo um sidustu helgi og gistum eina nott nidri a Gold Coast, soludum okkur, syntum i briminu, kiktum i casino, fengum surfing lessons (sem endudu nu ekki vel thar sem vid rispudum okkur svo a sandinum i kennslunni, Eyrun tapadi solgleraugunum og eg sneri mig a hne. Hrafnhildur hinsvegar helt uppi heidrinum i felaginu og gat stadid a brettinu bara med sma adstod... geri adrir betur! Vid Eyrun vorum bara klapplidid "Haltur leidir blindan" i fjorunni a medan! LoL

Heyrdu, i dag sit eg a aedislegu backpacker gistiheimili a Emu Beach, sem er eiginlega in the middle of nowhere en thetta er med thvi flottara (set inn myndir seinna) og nottin kostar okkur innan vid 3thus kall! Vid eyddum deginum i siglingu kringum Great Kepple Island med otrulega nice folki sem bydur upp a svona siglingar og snorkl (maeli med theim hiklaust!) - Enginn annar turisti... bara vid og risastort fiskabur! Vid vorum a skutunni theirra Funtastic i allan dag, snorkludum, lagum og soludum okkur og skemmtum okkur konunglega. Eg hef aldrei snorklad adur og eg verd ad segja ad thetta er med thvi skemmtilegra sem eg hef gert a aevinni!

A morgun aetlum vid a krokodilabugard og byrjum heimsoknina a thvi ad snaeda gomsaeta krokodilasteik...

Jaeja, eg er ad stikna ur hita herna, aetla ad bera a mig Aloe Vera, er orlitid brunnin eftir snorklid i dag...  gaeti jafnvel skroppid adeins ut bara, thad er alveg ausandi rigning!


Dagur 9...

Jaeja godir halsar - vid erum komnar til Melbourne!

Vid erum bunar ad lenda i svo morgu skemmtilegu sidustu daga ad thad er aedi!

Vid forum i svona aevintyraferd til Blue Mountains eins og eg skrifadi i lok sidustu faerslu og thad var sko magnad. Vid vorum pikkadar upp kl. 8:30 ad morgni a kruttlegustu minirutu sem vid hofum sed a aevinni, eldgomul og sjuskud og driver-inn/guide-inn var svona blanda af Steve Irwin, Crocodile Dundee og Indiana Jones... alveg i khaki buxum, sjuskudum skom og med elstu derhufu sem sest hefur herna megin vid midbaug! Turinn var vaegast sagt aedi... vid saum kengurur a almenningstjaldstaedi, bara voda normal, kakadua saum vid lika - sem kosta marga peninga heima, enda vorum vid bara med dollaramerki i augunum (samt virdast their eiginlega bara vera plaga herna), sporddreka i Fanta-flosku sem Crocodile Jim pikkadi upp i frumskoginum, bara rolegur... og vef haettulegustu kongulo herna, Funnel web... ja nei takk, vil ekkert hitta thaer! Thad var eiginlega frekar magnad ad labba nidur 1.000 troppur nidur fjallshlid nidur i midjan frumskoginn og vera eiginlega bara lent i Jurassic Park biomynd! A leidinni upp hinsvegar tokum vid brottustu lestarteina i heimi, 52 gradur takk fyrir pent... og vid snerum ofugt!!!

I fyrradag forum vid i svakalegan gongutur um Sydney, komum fotalausar heim eiginlega. En thad var sko worth it! Vid forum i Royal Botanic Gardens i Sydney og lentum eiginlega i dyragardsheimsokn... storfurdulegir fuglar maettu okkur, thar a medal fugl sem virtist vera blanda af ond og haenu med allt of storar faetur! Og... daddara... 20.000 ledurblokur takk fyrir pent! (lasum thad i baeklingi) 

Vid erum svo bunar ad spoka okkur adeins herna i Melbourne, forum a strondina i morgun og eg er vaegast sagt brunnin... enda var eg ad syna likamshluta sem sja sjaldan eda aldrei sol... who cares, eg er down under, thekki engan! Eg er sumse i osynilegu hvitu bikini... say no more!

Stefnan er svo tekin a ad fara i haestu byggingarnar a svaedinu, likt og i Sydney, skoda svo eitthvad merkilegt og skemmtilegt herna, jafnvel skella ser a strondina aftur... og fljuga svo til Brisbane a laugardaginn thar sem elskulegu fraenkur Hrafnhildar taka vid okkur med mikilli og skemmtilegri dagskra i 2 vikur! Timinn er allt of fljotur ad lida herna, eg sver thad...

Dagarnir eru heitir og vid erum farnar ad venjast thvi ad vera halfberar uti a gotu alveg sama hvenaer dagsins thad er og likar okkur thad bara vel! Eg held t.d. ad eg hafi sjaldan ferdast med flugvel jafn klaedalitil og i velinni hingad til Melbourne i gaer haha...

Jaeja, eg er orugglega ad gleyma einhverju en segjum thetta gott i bili!


Dagur 4...

Jaeja, kominn timi a thetta...

Vid sitjum a netkaffi i Glebe i Sydney sem er hverfid sem vid buum i thessa stundina. Agalega kosy bara! Vid erum ekki med glugga a herberginu okkar a guesthouse-inu en hey, hver tharf glugga i landi skordyranna? Vid erum tho med viftu, 14'' sjonvarp og isskap! Tho ma eiginlega segja ad thad se ekkert surefni i herberginu a morgnana thegar vid voknum og skilar thad ser lika i thvi ad vid erum ad vakna kl.6 a morgnana svona vanalega... i svona 28 stiga hita (ja Hrafnhildur er med hitamaeli i vekjaraklukkunni!)

Ferdalagid hingad tok sumse 48 klukkustundir... sem er ju dalitid langur timi enda thurftum vid ad lenda 3svar i Kina og bida inni i flugvelinni i Nanjing i 5 tima ut af "vondu" vedri i Shanghai sem atti bara ad vera klukkutima millilending adur en vid tokum 11 tima flugid til Sydney... ja svo eg setji thetta i timarod tha var ferdalagid svona:
Island - London = 3 timar
Bid i London = 3-4 timar
Flug til Peking = unkown... eg og Hrafnhildur sofnudum fyrir flugtak! (Vid holdum ad thad hafi verid svona 12 timar... uff, allavega meira en 7 timar thvi vid voknudum eftir godan lur og saum nidurtalningu a skja fyrir framan okkur ad thad vaeru 7 timar eftir haha)
Bid i Peking = 2 timar
Flug til Nanjing = 1 timi
Bid i flugvel i Nanjing vegna vedurs i Shanghai = 5 timar 
Flug fra Nanjing til Shanghai = heilar 30 minutur
Flug fra Shanghai til Sydney = 11 timar

To sum it up... tha vorum vid komar upp a guesthouse-id 48 timum eftir ad vid logdum af stad ur Grafarvoginum!

EN ja, vid erum sumse bunar ad gera allt thetta typiska... skoda operuhusid, Harbour Bridge, halda upp a aramotin med 1.5 milljon odrum i 39 stiga hita eda svo i midbaenum... fara i siglingar um alla mogulega floa og hafnir her i borg, spoka okkur i bikini a Bondi beach, skoda Sydney Aquarium, skala i "randyru" freydivini i 250 m haed  kl. 11 ad morgni nyarsdags (islensk aramot nota bene!) i Sydney Tower, skoda fake risaedlubein i Australian Museum, smakka alls kyns vidbjod i kokkteilum, s.s. Lychees ber (Eyrun telur ad berin kallist litkaber a islensku), fjoruferd a Kissing Point og margt margt fleira...

'Eg er einnig buin ad brenna vel... tho eg hafi notad solarvorn 50! Tinna... eg veit thetta er fyndid en eg er oll ad koma til, buin ad faera mig nidur i 30 og er bara ad tana eins og keppnismanneskja!

Stefnan er tekin a Blue Mountain tour a morgun og svo Melbourne a manudaginn...

Held eg lati thetta vera gott i bili!

Kvedjur ur svitanum og hitanum i Sydney!

p.s. myndirnar minar koma seinna...

p.p.s. vid fjarfestum i afar fallegum hottum i gaer ut af solinni og litum ut eins og skatar i vettfangsferd og faum verdskuldada athygli hvert sem vid forum! (Eyrun setti inn nokkrar myndir... bloggid hennar er HER)

p.p.p.s. sko... thetta var eiginlega dagur 5 thegar eg bloggadi, vid hofum nefnilega att vid malhelti og talnarugl ad strida sidan vid komum!


Eg er bara i Astraliu...

Jaeja, tha er madur herna megin a hnettinum bara...

Ferdalagid tok eingongu 48 klukkutima (rita um thad sidar takk fyrir pent!)

Framundan er aramotafognudur herna i Sydney i svona ca 39 stiga hita eda svo... dalitid surrealiskt!

Skrifa meira seinna, thessi tolva er allt of haegvirk!

 

Gledilegt ar og takk fyrir thad lidna og allt thetta typiska sem madur skrifar og segir... Cool


Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Hyvää Joulua ja Onnellista Uutta Vuotta!

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég verð stödd í Ástralíu í mánuð frá og með næsta laugardegi svo ég veit ekki alveg hvernig blogg"status" minn verður í þann tíma. Ég vona að þið njótið þess að vera í faðmi fjölskyldu og vina yfir hátíðarnar í smákökuilm og kósýheitum.

Ykkar,
Rósa Gréta

jól, jól, jól...

Ég er komin heim...

... í heiðardalinn, ég er komin heim með slitna skó! Tounge

Fokking fokk...

Helvitis profid gekk ekki vel.

Eg fekk tolvu Thjodverjans en bara med einhverri pirate utgafu af Excel 2003 og viti menn, eins og their eru nu hressir tha thyda their ekki bara tolvurnar sinar og eru med serstok lyklabord thar sem z er thar sem y er ... heldur thyda their ALLAR skipanir i tolvunni, ALLAR... og tha meina eg ad IF i Excel er ekkert IF heldur WENN.

Eg eiginlega skitfell i thessu profi, sem er omurlegt thar sem eg hefdi getad rullad thessu upp med Excel a ensku.

Eg er eiginlega half frustrerud ut af thessu... frestar utskriftinni minni um halft ar ef HR ser ekki aumur a mer. Mer fyndist thad frekar lelegt ef eg yrdi game over ut af taekniordugleikum.

Well... 1 prof eftir a morgun i finnsku - svo heim a fimmtudaginn!

SJAUMST! W00t


Ömurlegur dagur

Tölvan min do i gaer.

Tharf ad taka 40% af profinu a laugardaginn a tölvu. 

Sendiradid getur ekki leyft mer ad nota theirra tölvur ut af öryggisastaedum, skiljanlega.

Enginn her sem getur lanad mer tölvuna sina, folk farid heim i jolafri eda sjalf i bullandi profum.

Skolinn lokadur um helgar. 

Langar ad grata ut af pirringi og veseni.

4 lokaprof framundan a 6 dögum og er enntha i fullri kennslu.  - 11.,13.,15. og 16. des.

Bad hair day.

Gleymdi ad senda pappakassann heim i gaer.

Svöng.

Ad byrja a tur. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband