Aulabrandari dagsins...
15.8.2007 | 13:54
Nunna stígur upp í leigubíl. Á leiðinni tekur hún eftir því að leigubílstjórinn, sem er hrikalega myndarlegur, er stanslaust að horfa á hana. Hún spyr hann af hverju hann stari svona. Hann svarar: "Sko, mig langar svo að spyrja þig að einu, en ég er svo hræddur um að þú verðir reið". Hún svarar: "Sonur minn, ég verð ekki reið. Þegar maður er orðinn svona gamall og hefur verið nunna í svo langan tíma sér maður og heyrir ótrúlegustu hluti. Ég er viss um að ég reiðist ekki".
"Ja, mig hefur alltaf dreymt um að kyssa nunnu"
Hún svarar: "Hmm, sjáum til hvað við getum gert í því. En það eru tvö skilyrði: Þú þarft að vera einhleypur og kaþólskur". Leigubílstjórinn er mjög spenntur og segir: "Já, ég er einhleypur og kaþólskur".
"Okay", segir nunnan, "stoppaðu á næsta stæði".
Nunna uppfyllir draum leigubílstjórans með kossi sem er betri en nokkuð sem hann hefur upplifað. En þegar þau eru komin aftur af stað byrjar hann að gráta. "Elsku barnið mitt," segir nunnan, "því ertu að gráta?" "Fyrirgefðu mér, en ég hef syndgað. Ég laug og verð að játa að ég er bæði giftur og lúterskur".
Nunnan segir: "Það er ekkert mál. Ég heiti Hjalti og er að fara í grímuball".
Athugasemdir
Hahahaha..
Jane Fonda 15.8.2007 kl. 13:59
Góður brandari en ég verð samt að segja þér að ég hef heyrt hann áður en þá var hann miklu klúrri ;)
Kristrún 15.8.2007 kl. 23:57
Hehe... já ég set svoleiðis nokk ekki á netið
Rósa Gréta Ívarsdóttir, 16.8.2007 kl. 22:00
talandi um smávegis klúrt. þetta færðu fyrir að vera hestamanneskja
bólgnir og hálsbrotnir bíða menn bana
sem ferðast á hestum um grundir og hlíð
því hef ég hingað til haft fyrir vana
að horfast í augu við það sem ég ríð
louie 19.8.2007 kl. 01:22
Nei við þekkjumst nú ekki mikið, eigum sameiginlegan vin og sá svo að þú værir í hestunum og það er bara gott fólk í hestunum ;)
Íris Fríða , 2.9.2007 kl. 10:33
Boxfélaginn þinn kæri hehe, en segðu mér ertu mikil hestakona?
Íris Fríða , 2.9.2007 kl. 18:21
Hehe já þetta er ekki ódýrt sport, ég er búin að vera frá 95 og á núna ein 10 stykki en ætla fara að minnka þetta áður en ég fer á hausinn á unga aldri ;)
Íris Fríða , 2.9.2007 kl. 19:03
Já bara endilega
Íris Fríða , 2.9.2007 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.