"Uppákoma" í Laugum
13.3.2007 | 13:13
(8.mars 2007)
"Gestir í líkamsræktarstöðinni Laugum í Laugardal urðu vitni að óvæntri uppákomu nú fyrir skemmstu, uppákomu sem ekki áttu að vera vitni að.
Fyrir þá sem ekki þekkja til í Laugum þá er líkamsræktarstöðin byggð við sundlaugina í Laugardal og geta gestir brugðið sér milli ræktar og laugar eftir hentugleika.
Hlaupabrettin í Laugum skipta svo tugum og eru á annatíma þétt skipuð. Þau eru staðsett þannig að við blasir sundlaugin en litað gler gerir það að verkum að gestirnir í líkamsræktarstöðinni sjá sundlaugargestina en sundlaugargestirnir sjá ekki gestina á hlaupabrettunum.
Í fyrradag gerðist það svo að par á besta aldri sást rölta í rólegheitunum upp úr sundlauginni og hverfa í skjól, þ.e.a.s. í hvarf við sundlaugina. Parið sat um stund og gáði hvort það sæist frá sundlauginni og hófst svo handa við innileg atlot. Þau atlot enduðu svo með holdlegri sameiningu.
Það sem parið áttaði sig ekki, var að þó þau væru í skjóli frá sundlaugargestum, þá blöstu þau við öllum í líkamsræktarstöðinni.
Segja vitni að atburðinum að talsverð stemmning hafi myndast á hlaupabrettunum við þessa óvæntu uppákomu, meðal annars blístur og húrrahróp.
Parið lauk hins vegar við sitt í rólegheitum án þess að hafa hugmynd um að fjöldi áhorfenda hefði verið að atlotunum."
Athugasemdir
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=226601
louie 14.3.2007 kl. 11:59
Segi það með þér Louisa... gelluna hefur kannski langað í prótínsjeik eftir sundið...
Rósa Gréta Ívarsdóttir, 14.3.2007 kl. 15:34
og svona prótínsjeik er mun ódýrari og ferskari en þeir sem eru lagaðir í laugum. man ekki betur en ég hafi lesið grein um álíka efni nema þá átti prótínið ekki að bjarga brjóstunum heldur gefa manni hraustari, sterkari og hvítari tennur. daninn bætti að sjálfsögðu við "så smager det godt!"
louie 14.3.2007 kl. 19:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.