Hafið þið einhvern tímann verið í sveit?

Mamma sendi mér þetta í pósti fyrir löngu síðan, langaði að deila þessu með ykkur þar sem þetta er svo yndislegt! 

Uglan
(eftir stúlku í 5.bekk)

Fuglinn sem ég ætla að skrifa um er ugla. Ég veit ekki mikið um uglur þannig að ég ætla skrifa um leðurblöku. Kýrin er spendýr. Hún hefur sex hliðar þ.e. hægri hlið, vinstri hlið efri hlið og neðri hlið. Að aftan hefur hún halann sem burstinn hangir í. Með burstanum fælir hún flugurnar í burtu svo þær komist ekki í mjólkina.

Höfuðið er til þess að hornin geti vaxið og að munnurinn geti verið einhversstaðar. Hornin eru til þess að stanga með en munnurinn til að borða með. Undir kúnni hangir mjólkin. Mjólkin kemur bara og kemur, allveg endalaust. Hvernig kúin gerir þetta hef ég ekki ennþá komist að en húngetur búið til meira og meira.

Kýrnar hafa mjög næmt lyktarskyn og lyktin af þeim finnst mjög langt langt í burtu. Það er skýringin á ferska sveitaloftinu. Karlmannskýr eru kölluð naut. Þau eru ekki spendýr.

Kýrnar borða ekki mikið en það sem þær borða, borða þær tvisvar svo þær fái nóg.  Þegar þær eru svangar þá baula þær en þegar þær segja ekki neitt þá er það vegna þess að þær eru pakksaddar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Takk fyrir. Ég er lengi búinn að velta fyrir mér til hvers hausinn væri á nautgripum

Jóhannes Ragnarsson, 7.3.2007 kl. 14:16

2 identicon

Hehe þessi saga er eiginlega of fyndin til að 11 ára stelpa hafi skrifað hana

Eyrún 9.3.2007 kl. 16:02

3 identicon

Þetta er snilldarsaga.... alveg samhengislaus en samt í samhengi....

Huldis Mjöll 11.3.2007 kl. 00:55

4 Smámynd: Jana RR

jahérna hér! Er þetta grín eða hvað?

Jana RR, 12.3.2007 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband