Ég er komin heim...

... í heiðardalinn, ég er komin heim með slitna skó! Tounge

Fokking fokk...

Helvitis profid gekk ekki vel.

Eg fekk tolvu Thjodverjans en bara med einhverri pirate utgafu af Excel 2003 og viti menn, eins og their eru nu hressir tha thyda their ekki bara tolvurnar sinar og eru med serstok lyklabord thar sem z er thar sem y er ... heldur thyda their ALLAR skipanir i tolvunni, ALLAR... og tha meina eg ad IF i Excel er ekkert IF heldur WENN.

Eg eiginlega skitfell i thessu profi, sem er omurlegt thar sem eg hefdi getad rullad thessu upp med Excel a ensku.

Eg er eiginlega half frustrerud ut af thessu... frestar utskriftinni minni um halft ar ef HR ser ekki aumur a mer. Mer fyndist thad frekar lelegt ef eg yrdi game over ut af taekniordugleikum.

Well... 1 prof eftir a morgun i finnsku - svo heim a fimmtudaginn!

SJAUMST! W00t


Ömurlegur dagur

Tölvan min do i gaer.

Tharf ad taka 40% af profinu a laugardaginn a tölvu. 

Sendiradid getur ekki leyft mer ad nota theirra tölvur ut af öryggisastaedum, skiljanlega.

Enginn her sem getur lanad mer tölvuna sina, folk farid heim i jolafri eda sjalf i bullandi profum.

Skolinn lokadur um helgar. 

Langar ad grata ut af pirringi og veseni.

4 lokaprof framundan a 6 dögum og er enntha i fullri kennslu.  - 11.,13.,15. og 16. des.

Bad hair day.

Gleymdi ad senda pappakassann heim i gaer.

Svöng.

Ad byrja a tur. 


Horny reindeer meets Icelandic viking

Föstudagur 28.nóvember

05:38 - Ég vakna við sms frá Þjóðverjanum: "Hvar ertu?"
06:10 - Ég er komin út á lestarstöð með allt mitt hafurtask, kófsveitt eftir að hafa vaðið snjóskaflana á leiðinni.
06:55 - Mæti bókstaflega á harðaspretti inn í flugstöðina í Vantaa 5 mínútum eftir síðasta kall út í vél eftir að Þjóðverjinn bað flugvélina að bíða eftir seina Íslendingnum.

Mæting í Rovaniemi í Lapplandi var eins og að koma inn í bíómynd. 10 stiga frost, snjókoma, snjór yfir öllu og mikið af jólaskreytingum - gat þetta verið betra? Hótelið æði og frábært morgunverðarhlaðborð sem beið okkar meðan við biðum eftir að tjekka okkur inn á hótelið. Restin af föstudeginum fór svo í svona almennan túristaleiðangur um miðbæ Rovaniemi, kvöldmat á Rocktaurant sem Lordi hannaði og svo afslöppun og videogláp á hótelinu. Jú Rovaniemi er einmitt heimabær Lordi sjáið til!

Laugardagur 29.nóvember

11:00 vorum við mættar í svaka kuldagalla múnderingu upp í skóg, tilbúnar í hreindýrasafarí og að heimsækja Husky farm.

Jæja, hreindýrasleðaferðin gekk nú ekki alveg snurðulaust fyrir sig. Óhapp nr. 1 var það að rennilásinn á kuldagallanum mínum var bilaður og ekki mögulegt að fara til baka með mig og skipta um. Ég tók hrausta Íslendinginn á þetta og sagðist ekki verða kalt - sem reyndar stóðst, ég var sú eina sem var alltaf að rífa mig úr gallanum að ofanverðu því mér var svo heitt!!! Kannski því ég var í lopasokkum, thermo bol og góðum buxum innanundir en ekki gallabuxum og peysu eins og hinir útlendingarnir ;) Ég og Þjóðverjinn vorum settar á sama sleða, aftasta sleðann og á hinum voru litlir Kínverjar og ein mamma með barn. Ekki alveg sanngjarnt gagnvart okkar hreindýri sem heitir Nina sem þurfti að draga tvær íturvaxnar meyjar gegnum skóginn með tilheyrandi átökum. Satt að segja var okkar hreindýr öflugast í ferðinni, alltaf að reyna að troðast fram fyrir næsta sleða og með eintóman æsing við börnin á þeim sleða sem skríktu eða öskruðu af hræðslu þegar Nina, the horny reindeer okkar kom másand og blásandi upp í andlitið á þeim.

Hápunktur ferðarinnar var þó algjörlega á Husky farm þegar við fengum að fara einn hring á hundasleða - sjetturinn, þvílíkur spenningur. Hundarnir spangóluðu af spenningi rétt fyrir take-off og svo þutu þeir með okkur á fleygiferð gegnum skóginn án þess að gefa frá sér múkk. Þarna voru um 350 hundar sem þurfa um 800 kg af mat á dag og eiga allir sitt eigið hús og agalega krúttlegir. Okkur var síðan boðið inn í hlýjan hytte þar sem við fengum dísætan og heitan bláberjasafa og piparkökur. Voðalega kósý.

Jæja, á bakaleiðinni frá Husky farm ákvað Nina svo að halda áfram að reyna að stinga sér fram úr sleðanum fyrir framan enn og aftur en í eitt skiptið vorum við að fara yfir litla brú yfir skurð svo sleðinn okkar fór á hlið og ég kútveltist ofan í snjóskafl og var eins og afvelta rolla í allri þessari kuldagallamúnderingu í skurðinum! Ég var í makindum mínum að reyna að taka myndir svo ég varð handalaus í fallinu og það eina sem stóð upp úr snjónum var annar handleggurinn með myndavélinni því herregud, ekki ætlaði ég að láta hana blotna!
Ég fékk svo langþráð "Reindeer Driver's Licence" eftir ferðina og fékk það afhent með orðunum "You completely deserve it" - haha... fjör!

Á sunnudeginum fórum við Þjóðverjinn á aðalskrifstofu finnska jólasveinsins við heimskautsbaug og hittum kauða og fengum mynd með honum. Hann sagðist því miður ekki tala íslensku en talaði við mig á skandinavísku, fínasti kappi... en jafnast ekki á við mína 13 jólasveina, Grýlu og Leppalúða og elsku jólaköttinn! Ég varð fyrir vissum vonbrigðum með þetta "Santa Claus Village" eins og það er kallað þar sem þetta er eiginlega bara þyrping af souvenir búðum og svo eitt risa snjóhús sem er kaffihús/bar líka. Mjög gaman samt sem áður að koma þangað og standa á heimskautslínunni þar sem ég hef ekki farið út í Grímsey og staðið á henni þar, skandall... bæti úr því þegar ég kem heim!

Mánudagurinn var mjög skemmtilegur líka þar sem við fórum á  Arktikum, sem er mjög vinsælt og flott safn í Rovaniemi og samastendur af alls kyns exhibitions um lífið við heimskautsbaug. Ég lenti í miklum umræðum við Þjóðverjann eftir heimsóknina til jólasveinsins daginn áður þar sem hún hélt því statt og stöðugt fram að Norðurpóllinn væri í Lapplandi, öss - skandall - ég gat hinsvegar sannað mál mitt á safninu þegar ég fann kort af heiminum sem sýndi þetta að þetta væri tóm þvæla, sama hvað krakkar skrifi utan á bréfin sín til jólasveinsins! Reyndar sýndi sama kort heimskautsbaug ganga þvert í gegnum Ísland og ég vissi að þetta væri ekki rétt en ég sagði ekki orð þar sem ég hafði unnið Norðurpóls umræðuna hahaha...

Þriðjudagsnótt fór í að ferðast heim til Helsinki. Ég var vöknuð kl. 4 því Þjóðverjinn vildi fara upp á flugvöll kl. 5 þó við ættum ekki flug fyrr en 6:30, tja... ég lét undan þar sem ég hafði nú næstum látið okkur missa af ferðinni á föstudeginum en what the hey... haha - ég var svo þreytt þegar ég kom heim til Helsinki að ég svaf eiginlega non-stop í sólarhring. Ég tók nefnilega ekki fram að bæði laugardags- og sunnudagskvöld var ég aðeins úti að tjútta með tveimur Spánverjum sem ég kynntist fyrra kvöldið ... mikið fjör og mikið grín, ég held ég hafi aldrei áður farið út að skemmta mér í lopasokkum við kjól og verið nokkurn veginn slétt sama ;) Held ég starti þessu sem tísku þegar ég kem heim til Íslands!

Jæja nóg í bili, 19 dagar í heimför...

p.s. Bara svo ég útskýri titilinn á blogginu.
Þjóðverjinn var að reyna að finna orðið fyrir það "að hafa horn" og notaði orðið horny... mér fannst það fyndið!


Licence and registration please...

Jæja, það er tvennt sem ég ætla að minnast á... já eða þrennt

Í fyrsta lagi, fólk er óduglegt við að kvitta fyrir komuna hérna á elsku síðunni minni, frekar skítt - er fólk bara farið að gleyma mér?

Í öðru lagi, ég er að fara til Lapplands í næstu viku, mun þar spreyta mig á hundasleða og hreindýrasleða ásamt því sem ég mun reyna að fá "Reindeer Driver's License" sem að sjálfsögðu mun rata á ferilskrána mína... ég er búin að hlæja að þessu í nokkra klukkutíma og finnst þetta ennþá fyndið!

Í þriðja lagi... það er kominn vetur í Helsinki, allavega er frostið komið sem skilar sér í rjóðum kinnum og trefli um hálsinn. Það er líka bara 31 dagur þar til ég fer heim til Íslands og það eru blendnar tilfinningar í gangi - ég er kolfallin fyrir Helsinki og Finnlandi yfir höfuð, mér líður rosalega vel hérna. Ég er kannski ekki að taka týpíska skiptinemapakkann á þetta þar sem ég ligg ekki í vodkaflöskunni alla daga og allar helgar sem mér sýnist vera siður því miður. Ég er meira í því að upplifa Helsinki á minn eigin máta, Rósa einfari... skiptir mig litlu þó ég sé ein að skottast eitthvað, finnst það bara fínt. Ég er nú samt búin að kynnast fullt af góðu fólki hérna úti og vona að þau tengsl haldist eftir að ég fer heim. En já, svona í heildina get ég ekki annað sagt en að ég sé eins og blóm í eggi!

Ég fór í bæinn áðan með Anni, finnskri vinkonu minni og ég varð hálf leið eitthvað yfir því að eiga bara fjórar vikur eftir hérna í Múmínálfalandinu. Hvar annars staðar sérðu hálfbera miðaldra karla sitja fyrir utan public sauna, pub tram-inn, fólk í stígvélum við hvaða klæðnað sem er, fólk með marglitt hár... æ og fleira og fleira yndislegt og fjölbreytt! Æ og bara... já ég er leið yfir því að þurfa að kveðja bráðum!

Ef þið klikkið á myndina af mér hérna til hliðar þá setti ég inn nokkrar myndir í dag frá einum af mínum mörgu hressingar- og kósýheita göngutúrum.

Hey, áskorun desembermánaðar er annars að fara á "Joulutarina" í bíó eða "Jólasaga" á finnsku!!!
 Það held ég að verði vægast sagt áhugavert!


Eftir 5 vikur...

Þá verð ég sitjandi hérna á rúminu mínu, pissandi á mig af spenningi að fara heim til Íslands í hádeginu daginn eftir W00t

... eða ef ég þekki mig rétt - ekki byrjuð að pakka! hahaha...


Nyhavn í gærkvöldi

Helgin var yndisleg í alla staði, æðislegt að hitta stelpurnar mínar í Århus, við skemmtum okkur konunglega og höfðum gaman saman, fögnuðum komu Tuborg Julebryg á Heidi's o.fl. o.fl. Katrín kíkti svo til Århus á laugardaginn og við áttum kósý stund í Den Gamle By og á kaffihúsi í miðbæ Århus. Ég naut þess svo að slaka á í Köben í gær í góðum félagsskap og rölta niður að Nyhavn og til baka og rifja upp sumarið sem við Bára bjuggum í Köben, æðislegt en já ég er komin heim til Helsinki. Back to reality...

Kristian vinur minn spurði mig í gær hvort ég saknaði Reykjavíkur eitthvað. Ég get ekki sagt það, svona í hreinskilni sagt, ég sakna fólksins míns en Skype, Facebook og MSN eru alveg svakaleg hjálpartæki... mig langar að vera lengur úti, hvort heldur sem er hérna í Finnlandi eða annars staðar. En meira um svoleiðis pælingar seinna!

Takk aftur fyrir helgina elsku Tinna og Jana... og til hamingju með afmælið í dag Tinna mín, afmælisdagurinn þinn er löngu byrjaður í mínu landi svo ég má alveg óska þér til hamingju núna!!! Kissing

Og ein af okkur stöllum svona í lokin...

JRT

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband